Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Hvaða kona var fyrst til þess að fara út í geiminn?

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands
Innskráning í Uglu:

 

 

Velkomin á heimasíðu Sagnfræðistofnunar

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands var stofnuð árið 1971. Hún er faglega sjálfstæð rannsóknarstofnun innan Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands. Aðild að Sagnfræðistofnun eiga kennarar  í sagnfræði, starfsfólk, sérfræðingar og styrkþegar stofnunarinnar og framhaldsnemar í sagnfræði við Háskóla Íslands sem þess óska.

Stofnunin annast grunnrannsóknir í sagnfræði, gengst fyrir ráðstefnum, námskeiðum, málstofum, fyrirlestrum og hvers konar annarri starfsemi er verða má til gagns fyrir almenning og kennslu í sagnfræði í skólum landsins. Sagnfræðistofnun gefur út bækur um íslenska sögu og sagnfræði. Þá vinnur stofnunin að því að efla tengsl rannsókna og kennslu og veita stúdentum og framhaldsnemum þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum. Einnig annast stofnunin þjónusturannsóknir fyrir opinbera aðila eða einkaaðila.

Stjórn Sagnfræðistofnunar skipa Valur Ingimundarson prófessor, Anna Agnarsdóttir prófessor og Ólafur Arnar Sveinsson, fulltrúi stúdenta.

RÁÐSTEFNA
Þann 27. mars verður haldin ráðstefna til minningar um Halldór Bjarnason, aðjunkt í sagnfræði.
Sjá nánar.